Nálar.is
Eclipse svart tattoo blek 260ml
Eclipse svart tattoo blek 260ml
Couldn't load pickup availability
Eclipse Tattoo Ink – Hið fullkomna svarta blek
Eclipse Tattoo Ink er „hið fullkomna svarta húðflúrblek“. Það hefur þunna seigju en viðheldur dúpum svörtum tón, sem gerir það fullkomið bæði í línur (lining) og skugga (shading).
Blekið er framleitt innan Evrópusambandsins úr hreinustu fáanlegu svörtu litarefnunum. Það er Vegan, ofnæmisprófað (hypoallergenic), sótthreinsað og uppfyllir ströngustu REACH 2022 reglugerðirnar. Eclipse Tattoo Ink er blek sem mun án efa skipa fastan sess á þínu vinnuborði um ókomna tíð.
Eclipse blekið var þróað og fullkomnað af reyndum húðflúrurum með áratuga reynslu af gerð húðflúrbleks. Þetta er fjölhæft blek sem hentar jafnt í línur, skugga og til að fylla í stór, heilsvört svæði. Það fer einstaklega mjúklega í húðina og blandast (wash down) frábærlega fyrir mjúka grátóna sem henta fullkomlega í raunsæisverk (realism).
Helstu eiginleikar:
-
Tjörudjúpur og hreinn svartur litur
-
Framleitt í Evrópu
-
Uppfyllir REACH 2022 staðla
-
Vegan-vænt
-
Sótthreinsað
-
Fjölhæft svart blek fyrir allar gerðir verka
-
Frábært til blöndunar fyrir silkimjúka grátóna
-
260 ml flaska
Share
