Nálar.is
Unistar Green Soap
Unistar Green Soap
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Unistar Green Soap – Hinn fullkomni valkostur fyrir húðflúrarara!
Unistar Green Soap er ómissandi fyrir alla húðflúrara! Þessi þykka, óþynnta grænsápa er sérstaklega hönnuð til þess að hreinsa og næra húðina bæði á meðan á húðflúrun stendur og eftir á.
Sápan er þróuð í Póllandi með sérútbúinni formúlu sem byggir á náttúrulegum innihaldsefnum. Unistar Green Soap fjarlægir umfram blek og smurefni (lubricant) á afar áhrifaríkan hátt, sem tryggir fullkomlega hreinan striga fyrir listaverkið þitt.
Unistar Green Soap leggur ekki aðeins áherslu á virkni, heldur er öryggi húðarinnar ávallt í fyrirrúmi. Hvert innihaldsefni er vandlega valið til þess að tryggja milda og húðvæna notkun. Svo má ekki gleyma dásamlegum ilminum af grænum eplum, sem gerir húðflúrferlið að einstaklega þægilegri upplifun.
En það er fleira! Unistar Green Soap er auðguð með E-vítamíni, sem gengur skrefinu lengra með því að næra, sefa og endurnýja húðina.
Notkun: Fyrir bestu vinnsluna mælir Unistar með því að þynna sáruna með vatni í hlutföllunum 1:10. Eftir þynningu er örlitlu magni af sápunni úðað á húðina með sprautubrúsa, eða henni hellt beint á bréf/klút og dreift varlega með hringlaga hreyfingum yfir húðflúraða svæðið. Þurrkaðu yfir svæðið eftir hreinsunina til að fá flekklausa og hreina áferð.
Fáanlegt í 1 lítra (1000 ml) flöskum.
Share
